Nokia N70 Music Edition - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

120

Viðbótaröryggisupplýsingar

Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir. Þá skal
geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Vinnuumhverfi

Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum
sem gilda á hverju svæði og að slökkva alltaf á tækinu þar sem
notkun þess er bönnuð, eða þar sem hún kann að valda truflun
eða hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Þetta
tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF)
við notkun annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða
þegar það er haft að minnsta kosti 1,5 sm (5/8 tommur) frá
líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar
tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður
ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta
kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér
á undan.

Svo að hægt sé að senda gagnaskrár eða boð þarf þetta tæki
góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending
gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja
skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til
sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Tækið gæti dregið að
sér segulmagnað efni. Ekki skal hafa kreditkort eða aðra
segulmagnaða geymslumiðla nálægt tækinu því að
upplýsingar sem þar eru vistaðar kunna að eyðast.

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar
með talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni
lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal
samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins
til þess að komast að því hvort það sé nægilega vel varið
fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla
nánari upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda við
heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um
að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna
að nota búnað sem getur verið næmur fyrir utanaðkomandi
útvarpsbylgjum.

Gangráðar

Framleiðendur gangráða mæla með því að

15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss
síma og gangráðs til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun
í gangráðinum. Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða
rannsókn og tilmæli frá Wireless Technology Research.
Notendur gangráða ættu:

alltaf að halda tækinu í meira en 15,3 sm (6 tommu)
fjarlægð frá gangráðinum;

ekki að bera tækið í brjóstvasa; og

að hafa tækið við eyrað sem er fjær gangráðinum til
að draga úr líkum á truflunum.

Ef grunur leikur á að tækið trufli gangráðinn skal slökkva á
því og færa það í burtu.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

121

Heyrnartæki

Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum

heyrnartæki. Ef truflun verður skal leita til þjónustuaðila.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum
ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega
varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð
hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og
loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda
bílsins eða búnaðarins sem bætt hefur verið við eða
fulltrúa hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið
upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda
hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á tækinu.
Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt.
Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða
sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða
aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa
hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja
hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan
búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á útþenslusvið
loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og
loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva
skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun
þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við
stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið
ólöglegt.

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á
sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást á
skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera
á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél
bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu
eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll.
Slökkva skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo sem við
eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á
notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar
sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum
eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta
er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru
svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru
geymd eða búin til flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi
svartolíugas (própan eða bútan) og svæði þar sem í lofti
eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.

Neyðarhringingar

Mikilvægt:

Þráðlausir símar, þar á meðal þetta

tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og
notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja
tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei
treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða
bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

122

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort
nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt
SIM-kort sé rétt sett í tækið.

2

Styðja skal á hætta-takkann eins oft og þarf til að hreinsa
skjáinn og gera tækið tilbúið fyrir símtöl.

3

Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið.
Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Stutt er á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær
óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Nánari upplýsingar
má fá í þessari handbók eða hjá þjónustuveitunni.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar
upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið
getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Upplýsingar um vottun (SAR)

ÞETTA ÞRÁÐLAUSA TÆKI SAMRÆMIST
VIÐMIÐUNARREGLUM UM ÁHRIF AF ÚTVARPSBYLGJUM

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það
er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af
útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla
með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu
vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggimörk sem
ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.

Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur úr þráðlausum tækjum
er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri
mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 vött/
kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef.
Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum stöðum þegar
tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum mældum
tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur
verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til
að nota aðeins þann styrk sem þarf til að ná sambandi við
símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt
notandinn er frá grunnstöð. Samkvæmt viðmiðunarreglum
ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins við eyra
0,95 W/kg.

Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið verði
annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum
mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs. Nánari
upplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á
www.nokia.com

background image

123