Nokia N70 Music Edition - Uppsetning forrita og hugbúnaðar

background image

Uppsetning forrita og hugbúnaðar

Ábending! Þú getur einnig notað Nokia Application

Installer í Nokia PC Suite til að setja upp forrit. Sjá
geisladiskinn sem fylgir með tækinu.

Táknin fyrir forrit eru eftirfarandi:

.sis forrit;

Java-forrit;

forrit sem ekki hefur verið sett upp að

fullu;

forrit sem hefur verið sett upp á minniskorti.

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og

annan hugbúnað frá aðilum sem veita nægilegt öryggi
og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.

Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:

• Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda

eða framleiðanda forritsins skaltu velja

Valkostir

>

Skoða frekari uppl.

.

• Til að birta upplýsingar um öryggisvottorð forritsins

skaltu velja

Valkostir

>

Skoða vottorð

. Sjá

„Vottorðastjórnun“ á bls. 105.

• Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða

endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu
aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort
upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða
öryggisafrit af öllum hugbúnaðarpakkanum sem var
fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið

background image

Verkfæri

110

skaltu fyrst fjarlægja forritið og setja það svo upp
aftur með því að nota upphaflegu uppsetningarskrána
eða öryggisafritið.

• Nauðsynlegt er að hafa .jar skrá til að setja upp

Java-forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig
um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður
er tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að
velja aðgangsstað. Þegar þú hleður niður .jar skránni
geturðu þurft að slá inn notandanafn og lykilorð
til að fá aðgang að miðlaranum. Þú getur fengið
notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða
framleiðanda forritsins.

1

Opnaðu

Stjórnandi

og skrunaðu að

uppsetningarskránni. Þú getur einnig leitað í minni
tækisins eða á minniskorti í

Skr.stj.

, eða opnað

tölvupóst í

Skilaboð

>

Innhólf

sem inniheldur

uppsetningarskrána.
Veldu forritið og ýttu á

til að hefja uppsetninguna.

Ábending! Hægt er að hlaða niður

uppsetningarskrá og setja hana upp, án
þess að loka tengingunni þegar vafrað er.

2

Veldu

Valkostir

>

Setja upp

.

Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar
um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit
án stafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið
viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp
forritið ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.

Til að ræsa uppsett forrit skaltu staðsetja það í valmyndinni
og ýta á

.

Til að koma á tengingu við símkerfi og skoða
viðbótarupplýsingar um forritið skaltu skruna að því
og velja

Valkostir

>

Opna vefsíðu

, ef sá möguleiki

er til staðar.

Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir
upp eða fjarlægðir, og hvenær það var gert skaltu velja

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Til að senda notkunarskrána sem inniheldur upplýsingar
um uppsetninguna á hjálparskjá til að hægt sé að skoða
hvað hefur verið sett upp eða fjarlægt skaltu velja

Valkostir

>

Senda notk.skrá

>

Sem SMS

eða

Með

tölvupósti

(aðeins til staðar ef réttar tölvupóststillingar

hafa verið tilgreindar).