
Stjórnandi forrita
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stjórnandi
. Þú getur sett
upp tvenns konar forrit og hugbúnað í tækinu:
• J2ME™ forrit byggð á Java technology með endingunni
.jad eða .jar (
).
• Önnur forrit og hugbúnaður sem henta
Symbian-stýrikerfinu (
). Uppsetningarskrárnar
hafa endinguna .sis. Settu aðeins upp hugbúnað sem er
sérstaklega hannaður fyrir Nokia N70 tækið.
Hugbúnaðarframleiðendur vísa stundum til opinbers
heitis þessarar vöru: Nokia N70-1.
Hægt er að flytja uppsetningaskrár í tækið úr samhæfðri
tölvu, hlaða þeim niður meðan þú vafrar eða senda þær
til þín sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi
eða með Bluetooth-tengingu. Þú getur notað Nokia
Application Installer í Nokia PC Suite til að setja upp
forrit í tækinu eða á samhæft minniskort. Ef þú notar
Microsoft Windows Explorer til að flytja skrá skaltu
setja skrána á samhæft minniskort (staðbundinn disk).
Dæmi: Ef þú hefur fengið uppsetningarskrána
sem viðhengi í tölvupósti skaltu opna pósthólfið
þitt, opna tölvupóstinn, þá viðhengjaskjáinn, velja
uppsetningarskrána og ýta á
til að hefja
uppsetninguna.