Nokia N70 Music Edition - Tengistillingar

background image

Tengistillingar

Gagnatengingar og aðgangsstaðir

Tækið þitt styður pakkagagnatengingar (

), líkt og GPRS í

GSM-símkerfi.

Útskýring: GPRS (General Packet Radio Service) notar

pakkagagnatækni þar sem upplýsingar eru sendar í
litlum gagnapökkum í farsímakerfi.

Til að koma á gagnatengingu verður aðgangsstaður að
hafa verið valinn. Þú getur tilgreint mismunandi gerðir
aðgangsstaða, líkt og:

• MMS-aðgangsstað til að senda og taka við

margmiðlunarskilaboðum,

• Aðgangsstað fyrir Vefforritið til að skoða WML- eða

XHTML-síður

• Internetaðgangsstað (IAP) til að senda og taka við

tölvupósti

Upplýsingar um hvaða gerð af aðgangsstað þarf að nota
fyrir tiltekna þjónustu má fá hjá þjónustuveitu.
Símafyrirtækið þitt eða þjónustuveita gefa upplýsingar um
pakkagagnaþjónustu og áskrift að henni.

Pakkagagnatengingar í GSM- og
UMTS-símkerfum

Þegar tækið er notað í GSM- og UMTS-símkerfum er
hægt að hafa margar gagnatengingar í gangi samtímis
og aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu. Í UMTS-
símkerfinu er ekki slökkt á gagnatengingu þegar símtal
er í gangi. Upplýsingar um hvernig á að skoða virkar
gagnatengingar er að finna í „Stjórnandi tenginga“
á bls. 91.

Eftirfarandi vísar geta birst fyrir neðan merkisvísinn, allt
eftir því hvaða símkerfi er í notkun:

GSM-símkerfi, pakkagögn eru möguleg á símkerfinu.

GSM-símkerfi, pakkagagnatenging er virk og verið er

að flytja gögn.

GSM-símkerfi, margar pakkagagnatengingar eru virkar.

GSM-símkerfi, pakkagagnatenging er í bið. (Þetta getur

t.d.gerst þegar símtal er í gangi.)

UMTS-símkerfi, pakkagögn eru möguleg á símkerfinu.

UMTS-símkerfi, pakkagagnatenging er virk og verið

er að flytja gögn.

UMTS-símkerfi, margar pakkagagnatengingar eru

virkar.

UMTS-símkerfi, pakkagagnatenging er í bið.

background image

Verkfæri

102

Móttaka stillinga fyrir aðgangsstaði

Þú getur fengið stillingar fyrir aðgangsstaði í
textaskilaboðum frá þjónustuveitu. Einnig getur verið
að stillingarnar séu forstilltar í tækinu. Sjá „Gögn og
stillingar“ á bls. 59.

Til að búa til nýjan aðgangsstað skaltu ýta á

takkann og opna

Verkfæri

>

Stillingar

>

Samband

>

Aðgangsstaðir

.

Aðgangsstaðir geta verið varðir (

) af símafyrirtækinu

þínu eða þjónustuveitu. Ekki er hægt að breyta eða eyða
vörðum aðgangsstöðum.

Aðgangsstaðir

Ábending! Sjá einnig „Móttaka stillinga fyrir MMS-

og tölvupóst“, bls. 58, „Tölvupóstur“, bls. 65 og „Vefur
opnaður“, bls. 75.

Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.

Nafn tengingar

—gefðu tengingunni lýsandi heiti.

Flutningsmáti

—það hvaða reiti er hægt að fylla út veltur

á því hvaða gagnatenging hefur verið valin. Fylltu út alla
reiti sem eru merktir með

Þarf að skilgr.

eða rauðri

stjörnu. Aðra reiti þarf ekki að fylla út nema
þjónustuveitan hafi tekið það fram.

Til að geta notað gagnatengingu verður símafyrirtækið
að styðja hana og, ef með þarf, virkja hana fyrir SIM-kortið
þitt.

Nafn aðgangsstaðar

(aðeins fyrir pakkagögn)—heiti

aðgangsstaðarins er nauðsynlegt til að koma á
tengingu við pakkagagna- og UMTS-símkerfin. Heiti
aðgangsstaðarins fæst uppgefið hjá símafyrirtækinu
eða þjónustuveitu.

Notandanafn

—Notandanafn getur verið nauðsynlegt

til að koma á gagnatengingu og það fæst hjá
þjónustuveitunni. Í notandanafninu er oft gerður
greinarmunur á há- og lágstöfum.

Biðja um lykilorð

—ef þú þarft að slá inn nýtt lykilorð

í hvert skipti sem þú skráir þig inn á miðlara, eða ef þú
vilt ekki vista lykilorðið þitt í tækinu, skaltu velja

.

Lykilorð

—það getur verið nauðsynlegt að nota lykilorð

til að koma á gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá
þjónustuveitunni. Í lykilorðum er oft gerður greinarmunur
á há- og lágstöfum.

Aðgangskort

—veldu

Venjulegt

eða

Öruggt

.

Heimasíða

—sláðu inn veffangið eða veffang

skilaboðastöðvar margmiðlunarboða, eftir því
hvað þú ert að setja upp.

background image

Verkfæri

103

Veldu

Valkostir

>

Frekari stillingar

til að breyta

eftirfarandi stillingum:

Gerð símkerfis

—Veldu hvaða internetsamskiptareglur

þú vilt nota:

IPv4 stillingar

eða

IPv6 stillingar

. Aðrar

stillingar velta á því hvaða gerð af símkerfi þú velur.

IP-tala símans

(fyrir IPv4)—sláðu inn IP-tölu tækisins.

Nafnamiðlarar

—sláðu inn IP-tölu aðalnafnamiðlarans

í

Aðalnafnamiðlari:

. Sláðu svo inn IP-tölu

aukanafnamiðlarans í

Aukanafnamiðlari:

. Vefföngin

fást hjá internetþjónustunni.

Útskýring: Þjónusta lénaheita (DNS - Domain Name

Service) er internetþjónusta sem þýðir nöfn léna eins og
www.nokia.com í IP-tölur líkt og 192.100.124.195.

Veff. proxy-miðlara

—tilgreindu veffangið fyrir

proxy-miðlarann.

Númer proxy-gáttar

—sláðu inn gáttarnúmer

proxy-miðlarans.

Pakkagögn

Pakkagagnastillingarnar hafa áhrif á alla aðgangsstaði
sem nota pakkagagnatengingar.

Pakkagagnatenging

—ef þú velur

Ef samband næst

og

ert á símkerfi sem styður pakkagögn skráir tækið sig á
pakkagagnasímkerfið. Þá er fljótlegra að ræsa virka
pakkagagnatengingu (t.d. til að senda og taka við

tölvupósti). Ef þú velur

Ef með þarf

notar tækið aðeins

pakkagagnatengingu ef þú ræsir forrit eða aðgerð sem
þarfnast hennar. Ef ekkert pakkagagnasamband er til
staðar og þú velur

Ef samband næst

reynir tækið

reglulega að koma á pakkagagnatengingu.

Aðgangsstaður

—heiti aðgangsstaðarins er nauðsynlegt

ef ætlunin er að nota tækið sem pakkagagnamótald
fyrir tölvu.

Samskipanir

Þú getur fengið öruggar miðlarastillingar frá
símafyrirtækinu þínu eða þjónustuveitu í stillingaboðum.
Einnig geta stillingarnar verið vistaðar á SIM- eða
USIM-kortinu þínu. Í

Samskipanir

geturðu vistað

þessar stillingar í tækinu, skoðað þær eða eytt þeim.