
Símkerfi
Tækið getur skipt sjálfkrafa á milli GSM og
UMTS-símkerfanna. GSM-símkerfið er táknað með
í biðstöðu. UMTS-símkerfið er táknað með
.
Símkerfi
(sést aðeins ef símafyrirtækið styður það)—
veldu hvaða símkerfi á að nota. Ef þú velur
Tvöfaldur
hamur
skiptir tækið sjálfkrafa á milli GSM- og
UMTS-símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar
og reikisamninga á milli símafyrirtækjanna.
Nánari upplýsingar fást hjá símafyrirtækinu.
Val á símafyrirtæki
—veldu
Sjálfvirkt
til að stilla tækið
þannig að það leiti að og velji eitt af þeim símkerfum sem
eru í boði, eða
Handvirkt
til að velja símkerfið sjálf/ur af
lista yfir símkerfi. Ef tengingin rofnar við símkerfið sem var
valið handvirkt gefur tækið frá sér hljóðmerki og biður um
að símkerfi sé valið aftur. Símkerfið sem er valið verður
að vera með reikisamning við símkerfið þitt, þ.e. fyrirtækið
sem lét þig fá SIM-kortið sem er í tækinu.
Útskýring: Reikisamningur er samningur milli
tveggja eða fleiri farsímaþjónustuveitna um að leyfa
notendum einnar veitunnar að nota þjónustu hinna.

Verkfæri
108
Uppl. um endurvarpa
—veldu
Virkar
til að láta tækið gefa
til kynna þegar það er notað á farsímakerfi sem byggir á
örbylgjutækni (MCN) og til að virkja móttöku upplýsinga
frá endurvarpa.