Nokia N70 Music Edition - Öryggi

background image

Öryggi

Sími og SIM

Beðið um PIN-númer

—þegar þessi stilling er virk er beðið

um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu. Ekki er
víst að öll SIM-kort leyfi að beiðni um PIN-númer sé gerð
óvirk. Sjá „Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir
læsingu“ á bls. 104.

PIN-númer

,

PIN2-númer

og

Númer fyrir læsingu

—þú

getur breytt númerinu fyrir læsingu auk PIN- og PIN2-
númeranna. Þessi númer geta aðeins innihaldið tölur
frá 0 til 9. Sjá „Útskýringar á PIN-númerum og númerum
fyrir læsingu“ á bls. 104.

Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist
neyðarnúmerum, t.d. 112, til að komast hjá því að hringja
óvart í neyðarnúmer.

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

Sjálfv. læsingartími

—þú getur valið tímann sem líður þar

til tækið læsist sjálfkrafa. Þá er aðeins hægt að opna
tækið aftur með því að slá inn rétt númer fyrir læsingu.
Sláðu inn tímann í mínútum eða veldu

Enginn

til að

óvirkja þennan valkost.

Tækið er opnað með því að slá inn númer fyrir læsingu.

Þegar tækið er læst getur samt verið hægt að hringja
í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Ábending! Til að læsa tækinu handvirkt skaltu ýta

á

. Listi yfir skipanir opnast. Veldu

Læsa síma

.

Læsa ef skipt um SIM

—þú getur látið tækið biðja um

númerið fyrir læsingu þegar óþekkt SIM-kort er sett í það.
Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem það
viðurkennir sem kort eigandans.

Lok. notendahópur

—þú getur tilgreint hóp fólks sem

þú getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).

Þegar símtöl eru takmörkuð við lokaða notendahópa getur
samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið.

Staðfesta SIM-þjón.

—þú getur látið tækið birta

staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).

Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir læsingu

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

PIN-númer—Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað í
leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir yfirleitt
með SIM-kortinu. Ef PIN-númerið er slegið rangt inn
þrisvar sinnum lokast PIN-númerið og það þarf að
opna það áður en hægt er að nota SIM-kortið aftur.
Sjá upplýsingarnar um PUK-númer í þessum hluta.

background image

Verkfæri

105

UPIN-númer—númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.
USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota í
UMTS-farsímum. UPIN-númerið hindrar að USIM-kortið
sé notað í leyfisleysi.

PIN2-númer—númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.

Læsingarnúmer (einnig þekkt sem öryggisnúmer)—Hægt
er að nota þetta númer (5 tölustafir) til að læsa tækinu
og hindra þannig að það sé notað í leyfisleysi. Upphaflega
númerið fyrir læsingu er 12345. Breyttu númerinu fyrir
læsingu til að koma í veg fyrir óleyfilega notkun tækisins.
Haltu nýja númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri
tækinu.

PUK- og PUK2-númer—Þessi númer (8 tölustafir)
eru nauðsynleg til að breyta lokuðu PIN-númeri eða
PIN2-númeri. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu
skaltu hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig fá
SIM-kortið.

UPUK-númer—þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til
að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki með
USIM-kortinu skaltu hafa samband við símafyrirtækið sem
lét þig fá USIM-kortið.

Vottorðastjórnun

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.

Útskýring: Stafræn vottorð eru notuð til að

sannreyna uppruna XHTML- eða WML-síðna og
uppsetts hugbúnaðar. Aðeins er hægt að treysta
þeim ef það er öruggt að þau séu ófölsuð.

Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Ýttu á

til að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er til
staðar.

Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna
á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu
og settur upp.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega

úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og
uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo
að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn
ein og sér. Vottorðastjórinn verður að vera með rétt,
sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi
fáist. Ef textinn

Vottorð útrunnið

eða

Vottorð ekki

enn gilt

birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt

skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning er á tækinu.

background image

Verkfæri

106

Upplýsingar um vottorð skoðaðar—áreiðanleiki
kannaður

Þú getur aðeins verið viss um rétt kenni miðlara þegar
búið er að kanna undirskrift og gildistíma
miðlaravottorðsins.

Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða
ef ekki er rétt öryggisvottorð í tækinu.

Til að sjá upplýsingar um vottorð skaltu velja það og
síðan

Valkostir

>

Upplýs. um vottorð

. Þegar upplýsingar

um vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins kannað og
einhver af eftirfarandi athugasemdum getur birst:

Vottorði ekki treyst

—þú hefur ekki valið vottorðið

fyrir nein forrit. Sjá „Trauststillingum breytt“ á bls.
106.

Vottorð útrunnið

—gildistími vottorðsins hefur

runnið út.

Vottorð ekki enn gilt

—vottorðið hefur ekki enn tekið

gildi.

Vottorð skemmt

—það er ekki hægt að nota vottorðið.

Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.

Trauststillingum breytt

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og
að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Skrunaðu að heimildarvottorði og veldu

Valkostir

>

Stillingar f. traust

. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem

valið er, birtist yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:

Symbian-uppsetning

:

—vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Symbian stýrikerfisforrits.

Internet

:

—vottorðið getur sannreynt miðlara.

Uppsetning forrita

:

—vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Java-forrits.

Könnun vott. á netinu

—veldu að kanna vottorð á

netinu áður en forrit er sett upp.

Veldu

Valkostir

>

Breyta still. f. traust

til að breyta

gildinu.