Nokia N70 Music Edition - Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannprófun
á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til
að tryggja að þú fáir rafhlöður frá Nokia skaltu kaupa þær hjá
viðurkenndum söluaðila Nokia, ganga úr skugga um að „Nokia
Original Enhancements“ táknið sé á umbúðunum og skoða
heilmyndarmiðann á eftirfarandi hátt:

Þó svo að þessum fjórum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það
ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé sannvottuð.
Ef þú hefur minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé
ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara
með hana til viðurkennds þjónustu- eða söluaðila Nokia.
Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna sannvottun
rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu
skila rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.

Sannvottun heilmyndar

1

Þegar þú horfir á heilmyndina
á miðanum ættirðu að sjá
Nokia-handabandstáknið frá einu
sjónarhorni og „Nokia Original
Enhancements“ táknið frá öðru.

2

Þegar þú snýrð heilmyndinni
til vinstri, hægri, upp eða
niður ættirðu að sjá 1, 2, 3,
eða 4 punkta, allt eftir
staðsetningu hennar.

3

Skafðu hliðina á miðanum og þá
á að koma í ljós 20-stafa tala, t.d.
12345678919876543210. Snúðu
rafhlöðunni þannig að tölurnar
vísi upp. 20 stafa talan byrjar í
efri röðinni og heldur áfram
í neðri röðinni.

4

Fáðu staðfestingu á því að
20 stafa talan sé gild með því
að fylgja leiðbeiningunum á
www.nokia.com/batterycheck.

Til að búa til textaskilaboð skaltu
slá inn 20 stafa töluna, t.d.
12345678919876543210, og
senda hana á +44 7786 200276.

Gjaldskrá innlendra og erlendra símafyrirtækja gildir.

Þá áttu að fá skilaboð sem segja til um hvort hægt er
að sannvotta töluna eða ekki.

background image

Upplýsingar um rafhlöðu

118

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með
heilmyndinni á miðanum sé ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu
ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda
þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð. Notkun
rafhlaða sem eru ekki samþykktar af framleiðanda getur verið
hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og
aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun
þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir eða
ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna
á www.nokia.com/battery.