Nokia N70 Music Edition - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

119

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara
þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að
halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar
geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið
blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna
alveg áður en rafhlaða er sett í aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né
geyma það þar. Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar þess
geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur
dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og
undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar
upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því
og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í
þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista
það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld
og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða
sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega
hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa
linsur (svo sem myndavélar-, fjarlægðarnema- og
ljósnemalinsur).

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða
samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á
þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga og reglugerða um senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem á að geyma
(svo sem tengiliðum og dagbókaratriðum) áður en tækið
er sent til þjónustuaðila.

Núlstilla skal tækið af og til svo að það virki sem best með
því að slökkva á því og fjarlægja rafhlöðuna. Taka skal
öryggisafrit af öllum mikilvægum gögnum.

Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við tækið,
rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki
vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda
þjónustuaðila til lagfæringar.