Efni flutt úr öðru tæki
Hægt er að afrita tengiliði, dagbók, myndir, hreyfimyndir
og hljóðinnskot með Bluetooth-tengingu úr samhæfu
Nokia S60 tæki.
Hægt er að nota Nokia N70 án SIM-korts. Kveikt er
sjálfkrafa á sniðinu án tengingar þegar kveikt er á tækinu
án þess að SIM-kort sé í því. Með þessu móti er hægt að
nota SIM-kortið í öðru tæki.
Til að forðast tvöfaldar færslur er aðeins hægt að flytja
sumar gerðir upplýsinga (líkt og tengiliði) einu sinni úr
öðru tæki í Nokia N70.
Áður en hægt er að hefja flutninginn þarf að kveikja á
Bluetooth-tengingunni í báðum tækjunum. Ýttu á
í hvoru tækinu fyrir sig og veldu
Tenging
>
Bluetooth
.
Veldu
Bluetooth
>
Kveikt
. Gefðu hvoru tækinu heiti.
Til að flytja efni:
1
Ýttu á
og opnaðu
Verkfæri
>
Flutningur
í Nokia N70 tækinu þínu. Fylgdu fyrirmælunum
á skjánum.
2
Tækið leitar að tækjum með Bluetooth. Þegar
leitinni er lokið velurðu hitt tækið af listanum.
3
Nokia N70 tækið biður þig að slá inn kóða. Sláðu
inn kóða (1-16 tölustafir að lengd) og veldu
Í lagi
.
Sláðu inn sama kóða í hitt tækið og veldu
Í lagi
.
4
Forritið
Flutningur
er sent í hitt tækið í skilaboðum.
5
Opnaðu skilaboðin til að setja upp
Flutningur
forritið
í hinu tækinu og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
6
Í Nokia N70 tækinu þínu skaltu velja efnið sem þú vilt
afrita úr hinu tækinu.
Efni er afritað úr minni og minniskorti hins tækisins í
Nokia N70 tækið og minniskort þess. Afritunartíminn
fer eftir því gagnamagni sem á að flytja á milli tækjanna.
Hægt er að hætta við afritunina og halda henni áfram
síðar.
Flutningur
forritinu er bætt við aðalvalmyndina
í hinu tækinu.