Nokia N70 Music Edition - Úthólf—skilaboð bíða sendingar

background image

Úthólf—skilaboð bíða
sendingar

Úthólf

er tímabundinn geymslustaður skilaboða sem bíða

þess að verða send.

Staða skilaboða í

Úthólf

er:

Sendir

—verið er að koma á tengingu og skilaboðin verða

send.

Í bið

/

Í bið

—skilaboðin verða send þegar fyrri skilaboð af

sömu gerð hafa verið send.

Senda aftur kl. ...

(tími)—tækið reynir að senda skilaboðin

aftur eftir ákveðinn tíma. Veldu

Valkostir

>

Senda

til að

senda skilaboðin strax.

Seinkað

—þú getur sett skilaboð í bið þegar þau eru í

Úthólf

. Veldu skilaboðin sem er verið að senda og svo

Valkostir

>

Seinka sendingu

.

Mistókst

—hámarksfjölda senditilrauna hefur verið náð.

Sendingin mistókst. Ef þú varst að reyna að senda
textaskilaboð skaltu opna skilaboðin og ganga úr skugga
um að sendikostirnir séu réttir.

Dæmi: Skilaboð eru t.d. sett í úthólfið þegar tækið

er utan þjónustusvæðis. Þú getur einnig beðið um að
tölvupóstskeyti verði send næst þegar þú tengist við
ytra pósthólf.