Stilling lita og lýsingar
Til að gera myndavélinni kleift að greina betur liti og
lýsingu, eða til að bæta inn sjónrænum áhrifum í myndir
eða hreyfimyndir, skaltu velja
Valkostir
>
Uppsetning
mynda
eða
Uppsetning hreyfim.
og síðan einhvern af
eftirfarandi valkostum:
Myndumhverfi
— veldu stillingu sem hentar fyrir
umhverfið/aðstæðurnar. Sjá „Myndumhverfi“ á bls. 39.
Fyrir hvert umhverfi eru ákveðnar stillingar á lýsingu sem
að hæfa því.
Flass
(eingöngu myndir og myndavél á bakhlið tækisins)—
stilltu flassið á
Sjálfvirkt
,
Þvingað
eða
Óvirkt
. Sjá
„Flassið“ á bls. 37.
Ljósgjafi
(aðeins myndavélin á bakhlið tækisins)—veldu
birtuskilyrðin af listanum. Þetta gerir myndavélinni kleift
að endurskapa liti af meiri nákvæmni.
Litáferð
(aðeins myndavélin á bakhlið tækisins)—veldu
áferðina af listanum.
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar
og sýnir hvernig lokaútkoma myndarinnar eða
hreyfimyndarinnar verður.
Þegar myndavélinni er lokað eru sjálfgefnar stillingar
hennar valdar aftur. Ef nýtt umhverfi er valið kemur það í
stað sjálfvöldu stillinganna. Sjá „Myndumhverfi“ á bls. 39.
Ef þú þarft að breyta stillingunum getur þú gert það eftir
að umhverfið hefur verið valið.
Myndavél og
gallerí
39