
Myndinnskotum breytt
Hægt er að breyta myndinnskotum í
Gallerí
.
Til að breyta myndinnskotum og búa til sérsniðin
myndinnskot skaltu velja myndinnskot og síðan
Valkostir
>
Breyta
. Hægt er að búa til sérsniðin
myndinnskot með því að sameina og klippa til myndinnskot
og bæta við hljóðinnskotum, umbreytingu og áhrifum.
Umbreyting felst í sjónrænum áhrifum sem hægt er að
bæta við í upphafi og við lok innskotsins eða á milli
myndinnskota.
Í myndvinnslunni sjást tvær tímalínur: tímalína
myndinnskotsins og tímalína hljóðinnskotsins. Ef þú bætir
myndum, texta eða umbreytingum við myndinnskot sjást
þessi atriði á tímalínu myndinnskotsins. Til að færast til á
tímalínunum er skrunað til hægri eða vinstri. Til að skipta
á milli tímalína er skrunað upp eða niður.
Hreyfimynd, hljóði, mynd, texta og
umbreytingum breytt
Til að búa til sérsniðin myndinnskot skaltu velja eitt
eða fleiri innskot og svo
Valkostir
>
Breyta
.
Ýttu á
og
til að skipta á milli mynd- og
hljóðinnskotsins.
Veldu eftirfarandi valkosti til að breyta hreyfimyndinni:
Br. myndinnskoti
:
Klippa
—klippir myndinnskotið á þar til gerðum skjá.
Bæta við litaáhrifum
—setur litaáhrif inn í myndinnskotið.
Nota hægspilun
—hægir á spilun myndinnskotsins.

Myndavél og
gallerí
43
Hljóð af
/
Hljóð á
—tekur hljóðið af myndinnskotinu eða
setur það á.
Færa
—færir myndinnskotið á valinn stað.
Fjarlægja
—fjarlægir myndinnskotið úr hreyfimyndinni.
Búa til afrit
—tekur afrit af valda myndinnskotinu.
Breyta texta
(kemur aðeins fram ef texta hefur verið bætt
við)—til að færa, fjarlægja eða afrita texta; breyta lit eða
lögun textans; ákvarða hversu lengi hann á að vera á
skjánum og bæta áhrifum við hann.
Breyta mynd
(kemur aðeins fram ef mynd hefur verið bætt
við innskotið)—til að færa, fjarlægja eða afrita myndina;
ákvarða hversu lengi hún á að vera á skjánum og stilla
bakgrunn eða litaáhrif.
Breyta hljóðinnskoti
:
Klippa
—klippir hljóðinnskotið á þar til gerðum skjá.
Færa
—færir hljóðinnskotið á valin stað.
Fjarlægja
—fjarlægir hljóðinnskotið úr hreyfimyndinni.
Búa til afrit
—tekur afrit af því hljóðinnskoti sem er valið.
Velja lengd
—breytir lengd hljóðinnskotsins.
Breyta umbreytingu
—um
þrjár gerðir umbreytinga
er að ræða: í upphafi
hreyfimyndar, við lok hennar
og á milli myndinnskota.
Hægt er að velja
upphafsbreytingu þegar
fyrsta umbreyting
hreyfimyndarinnar er virk.
Setja inn
:
Myndinnskot
—setur inn
valið myndinnskot. Á aðalskjánum birtist smámynd af
myndinnskotinu. Smámynd samanstendur af fyrsta ramma
myndinnskotsins sem ekki er svartur. Heiti og lengd valda
myndinnskotsins sjást einnig.
Mynd
—bætir við valinni mynd. Á aðalskjánum birtist
smámynd af myndinni.
Texta
—setur texta inn í myndinnskotið. Þú getur sett inn
titil, texta og lista yfir þá sem unnu að gerð myndarinnar.
Hljóðinnskot
—setur inn valið hljóðinnskot. Heiti og lengd
valda hljóðinnskotsins sést á aðalskjánum.
Nýtt hljóðinnskot
—tekur upp nýtt hljóðinnskot og vistar
það á völdum stað.
Kvikmynd
—til að skoða kvikmyndina í fullri skjástærð
eða sem smámynd, vista hana eða senda, eða klippa

Myndavél og
gallerí
44
hana niður í þá stærð sem gerir það kleift að senda
hana í margmiðlunarskilaboðum.
Ábending! Til að taka einn ramma út úr
myndinni skaltu velja
Valkostir
>
Taka skjámynd
í forskoðunarskjá fyrir smámyndir eða á skjánum
fyrir klippingu hreyfimynda.
Til að vista hreyfimyndina skaltu velja
Valkostir
>
Kvikmynd
>
Vista
. Til að velja
Minni í notkun
skaltu opna
Valkostir
>
Stillingar
. Minni tækisins er sjálfkrafa valið.
Ábending! Á skjánum
Stillingar
geturðu valið
Sjálfg. heiti hreyfim.
,
Sjálfg. heiti myndar
,
Upplausn
og
Minni í notkun
.
Veldu
Senda
>
Með margmiðlun
,
Með tölvupósti
eða
Með Bluetooth
ef þú vilt senda hreyfimyndina. Hafðu
samband við þjónustuveituna eða símafyrirtækið til að fá
upplýsingar um það hversu stór skilaboð er hægt að senda.
Ef hreyfimyndin er of stór til að hægt sé að senda hana
í margmiðlunarskilaboðum birtist
táknið.
Ábending! Ef þú vilt senda myndinnskot sem er yfir
þeirri hámarksstærð sem þjónustuveitan þín leyfir
geturðu sent það með Bluetooth. Sjá „Gögn send um
Bluetooth“ á bls. 88. Þú getur einnig flutt
hreyfimyndirnar þínar þráðlaust með Bluetooth yfir
í tölvu, eða með því að nota minniskortalesara
(aukahlutur).