Nokia N70 Music Edition - Raddstýrð hringing

background image

Raddstýrð hringing

Tækið þitt styður raddskipanir. Raddskipanir velta ekki á
rödd notandans þannig að hann þarf ekki að taka upp
raddmerki áður en hann notar þær. Þess í stað býr tækið til
raddmerki fyrir færslur í tengiliðum og ber það raddmerki
sem notandinn segir saman við þær. Raddkennslin í tækinu
laga sig að rödd aðalnotandans til að líklegra sé að tækið
beri kennsl á raddskipunina.

Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem
er vistað á tengiliðaspjaldinu. Til að hlusta á tilbúna
raddmerkið skaltu opna tengiliðaspjald og velja

Valkostir

>

Spila raddmerki

.

Hringt með raddmerki

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið

í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti
ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.

Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í
notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð fram
raddmerkið.

1

Haltu inni

takkanum til að hefja raddstýrða

hringingu. Ef þú notar samhæft höfuðtól með
höfuðtólstakka skaltu halda honum inni til að
hefja raddstýrða hringingu.

background image

Hringt úr tækinu

25

2

Stuttur tónn heyrist og textinn

Tala nú

birtist á

skjánum. Berðu skýrt fram nafnið eða gælunafnið
sem er vistað á tengiliðaspjaldinu.

3

Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn
á því tungumáli sem er valið og birtir nafnið og
símanúmerið. Tækið hringir í númerið eftir 1,5 sekúndu.
Ef tækið valdi rangan tengilið skaltu velja

Næsta

til að

skoða aðrar niðurstöður í lista eða

Hætta

til að hætta

við raddstýrða hringingu.

Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur tækið
sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Annars velur
tækið fyrsta númerið í eftirfarandi röð:

Farsími

,

Farsími

(heima)

,

Farsími (vinna)

,

Sími

,

Sími (heima)

og

Sími

(vinna)

.