Nokia N70 Music Edition - Myndsímtöl

background image

Myndsímtöl

Í myndsímtali getur þú og viðmælandi þinn séð rauntíma
hreyfimynd af hvorum öðrum. Viðtakandi þinn sér þá
hreyfimyndina sem myndavélin þín tekur.

Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og að vera
innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Símafyrirtækið þitt
eða þjónustuveitan þín gefa upplýsingar um framboð og
áskrift að myndsímtölum. Aðeins er hægt að koma á
myndsímtali við einn aðila í einu. Hægt er að koma á
myndsímtali við samhæfan farsíma eða ISDN-tengd tæki.

Ekki er hægt að koma á myndsímtölum þegar annað
símtal, myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.

Tákn:

Tækið þitt er ekki að taka við hreyfimynd (annað

hvort sendir viðtakandinn ekki hreyfimyndina eða
símkerfið sendir hana ekki).

Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.

Upplýsingar um hvernig á að senda kyrrmynd í stað
hreyfimyndar er að finna í „Stillingar fyrir hringingu“,
bls. 100.

1

Til að koma á myndsímtali skaltu slá inn númerið
í biðstöðu eða velja

Tengiliðir

og svo tengilið.

2

Veldu síðan

Valkostir

>

Myndsímtal

.

Það getur tekið nokkurn tíma að koma á myndsímtali.

Bíð eftir mynd

birtist. Ef ekki tekst að koma á tengingu,

(t.d. ef símkerfið styður ekki myndsímtöl eða
móttökutækið er ekki samhæft), er spurt hvort þú viljir
hringja venjulegt símtal eða senda textaskilaboð í staðinn.

Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær
hreyfimyndir og heyrt hljóð úr hátalaranum.
Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu (

) og

þá heyrir þú aðeins í honum og sérð að auki kyrrmynd
eða gráan bakgrunn.

Til að velja hvað sent er skaltu velja

Virkja

/

Óvirkja

>

Hreyfimynd

,

Hljóð

eða

Hljóð & hreyfimynd

.

background image

Hringt úr tækinu

26

Veldu

Stækka

eða

Minnka

til að stækka eða minnka

myndina af þér. Stækkunar/minnkunarvísirinn sést efst
á skjánum.

Hægt er að víxla myndunum á skjánum með því að velja

Víxla myndum

.

Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í myndsímtali er tekið
gjald fyrir símtalið sem myndsímtal. Upplýsingar um verð
fást hjá símafyrirtæki eða þjónustuveitu.

Myndsímtalinu er lokið með því að ýta á

.