![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N70 Music Edition/is/Nokia N70 Music Edition_is081.png)
Tónlistarspilari
Ýttu á
og veldu
Forrit. mín
>
Tónlist
. Með
tónlistarspilaranum er hægt að spila tónlistarskrár og
búa til og hlusta á lagalista.
Ábending! Til að opna
Tónlist
í Nokia N70 Music
Edition tækinu skaltu styðja á
.
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum
hljóðstyrk. Það getur skaðað heyrnina að hlusta
stöðugt á hátt stillta tónlist. Ekki skal halda tækinu
nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður því
hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Veldu
Möppur
eða
Tónlistamenn
til að skoða lög eftir
plötu eða flytjanda. Tækið safnar upplýsingum um plötuna
og flytjandann af ID3 hlutum laganna, ef þeir eru til staðar.
Til að afrita eða færa skrá yfir á samhæft minniskort
eða minni tækisins skaltu velja hana og svo
Valkostir
>
Skipuleggja
>
Afrita á minniskort
/
Færa á minniskort
eða
Afrita í minni síma
/
Færa í minni síma
. Skrár sem
eru geymdar á minniskorti eru táknaðar með
.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt
sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda suma tónlist
(þ.m.t. hringitóna) og annað efni.