
Spjall
Ýttu á
og veldu
Forrit. mín
>
Spjall
.
Spjallið (sérþjónusta) gerir þér kleift að hafa samband við
annað fólk með því að nota spjallskilaboð og taka þátt í
umræðuhópum (spjallhópum) þar sem rætt er um ákveðin
málefni. Þjónustuveitur halda úti spjallmiðlurum sem þú
getur skráð þig inn á þegar þú hefur gerst áskrifandi að
þjónustunni.
Veldu
Samtöl
til að hefja eða halda áfram samræðum við
aðra notendur;
Spjalltengiliðir
til að búa til, breyta eða
skoða hvort tengiliðir eru tengdir eða ekki;
Spjallhópar
til
að hefja eða halda hópsamræðum áfram við fleiri en einn
notanda; eða
Upptekið spjall
til að skoða eldri samræður
sem þú hefur vistað.
Kannaðu framboð spjallþjónustu, verðlagningu og
gjaldskrá hjá símafyrirtæki og/eða þjónustuveitu.
Þjónustuveitur veita einnig leiðbeiningar um hvernig
nota eigi þjónustu þeirra.