Nokia N70 Music Edition - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt
getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal
alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun
þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem
hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR Fara

skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal
hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu
við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir
í akstri.

TRUFLUN Öll þráðlaus tæki geta verið næm

fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni
þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á
SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar

takmarkanir. Slökkva skal á símanum
nálægt lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í
FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir.

Þráðlaus tæki geta valdið truflunum
í flugvélum.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN
ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki nota tækið nærri

eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við
eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM
VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar

takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið
er að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI Notist aðeins

í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í
leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal
óþarfa snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA Aðeins viðurkennt

starfsfólk má setja upp eða gera við þessa
vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR Aðeins

má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður.
Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI Tækið er ekki vatnshelt.

Halda skal því þurru.

background image

10

ÖRYGGISAFRIT Muna skal að taka

öryggisafrit eða halda skrá yfir allar
mikilvægar upplýsingar sem geymdar
eru í símanum.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið

er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók
með því vandlega, einkum upplýsingar um
öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL Tryggja skal að kveikt sé

á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar.
Styðja skal á hætta-takkann eins oft og þarf
til að hreinsa skjáinn og hverfa aftur að
upphafsskjánum. Neyðarnúmerið er valið,
síðan er stutt á hringitakkann. Gefa skal upp
staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en
að fengnu leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunar á EGSM 900, 1800 og 1900, og UMTS 2100
símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um símkerfi.

Tækið styður internettengingar og annars konar
tengingar. Á sama hátt og í tölvur geta vírusar, skaðleg
skilaboð og forrit, sem og annað skaðlegt efni, borist í

tækið. Fara skal að með gát og opna aðeins skilaboð,
samþykkja beiðnir um tengingar, hlaða niður efni og
samþykkja uppsetningar frá aðilum sem þú treystir.
Til að auka öryggi tækisins er ráðlegt að setja upp
vírusvarnarforrit sem uppfært er með reglubundnum
hætti og nota eldvegg.

Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin
réttindi annarra við alla notkun þessa tækis.

Þegar myndir eða myndinnskot eru tekin eða notuð skal
fylgja öllum lögum og virða staðbundna siði auk einkalífs
og lögbundinna réttinda annarra.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt
sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda sumar myndir,
tónlist (þar á meðal hringitóna) og annað efni.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,

annarra en vekjarans, þarf að vera kveikt á tækinu.
Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra
tækja getur valdið truflun eða hættu.

Sérþjónusta

Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir
þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margar aðgerðir í þessu
tæki eru háðar því að aðgerðir í þráðlausa símkerfinu virki.
Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum
símkerfum eða þörf getur verið á sérstökum ráðstöfunum

background image

11

hjá þjónustuveitunni áður en hægt er að nota sérþjónustu.
Þjónustuveitan getur þurft að gefa viðbótarfyrirmæli um
notkun og útskýra hvaða gjöld eiga við. Sum símkerfi geta
verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt
er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla
séríslenska bókstafi og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar
í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækinu kann einnig að hafa verið sérstaklega samskipað.
Þessi samskipan kann að fela í sér breytingar á
valmyndarheitum, röð valmynda og táknum.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir
í tækinu, eins og MMS, netskoðun, tölvupóst og niðurhal
efnis um vafra eða með MMS, þarf símkerfisstuðning við
viðkomandi tækni.

Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá
seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan,
símafyrirtækið eða annar söluaðili.

Aukahlutir, rafhlöður
og hleðslutæki

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður
en rafhlaðan er fjarlægð.

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru
notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
þegar það er hlaðið orku frá DC-4, AC-3, og AC-4
hleðslutækjum og AC-1, ACP-8, ACP-9, ACP-12, LCH-8,
LCH-9 eða LCH-12 hleðslutækjum þegar þau eru notuð
með millistykkinu CA-44.

Rafhlaðan sem nota skal með þessu tæki er BL-5C.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki

og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til notkunar
með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar
gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og
slíkri notkun getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar með tækinu. Þegar
aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna,
ekki leiðsluna.